Composer - Tónskáld



School song for Alftanes Elementary School / Skólasöngur Álftanesskóla (2010)

Texti: Sveinbjörn I. Baldvinsson

 
Ólgandi, kitlandi
aldan í fjörunni hlær.
Gælandi , strjúkandi
grasið á þúfunum grær.
Blikandi, lónandi
bláhvítur jökullinn sér
skundandi, þjótandi
skýin og mávanna her.
 
Viðlag:
Þetta er borg mín bæði og sveit
ból fyrir fund minn og leit.
Hér er himinninn hár
og hafsjórinn blár.
Barátta um frelsi
hér barnsskónum sleit.
 
Mjúklega brúnleita
mýrifugl strengina strauk.
Skarpsýna, hagorða
skáldið við ljóðlínu lauk.
Eitt tifandi andartak
tíminn stóð hljóður og kyrr.
Andandi, lifandi
allir sem fóru hér fyrr.
 
Viðlag: Þetta er borg mín…..
 
Bjargandi, vaggandi
baggar á hestum við tjörn.
Grátandi, hlæjandi
Gunnur og Jónar og börn.
Dreymandi, hugsandi
dugnaðarpiltar og –fljóð
með heillandi, ögrandi
hugmynd um alfrjálsa þjóð.
 
Viðlag: Þetta er borg mín…..
 
Beljandi, syngjandi
bjallan hún hringir nú inn.
Boðandi, veitandi
bækur og lærdóm um sinn.
En gangandi og sitjandi
greinum við sögunnar hrif;
áleitið, ögrandi
Álftanesklukkunnar tif.
Viðlag: Þetta er borg mín…..